Raúl kynntur til leiks í New York

Raúl er markahæsti leikmaður í sögu Real Madrid.
Raúl er markahæsti leikmaður í sögu Real Madrid. AFP

Spænska knattspyrnugoðsögnin Raúl var í dag kynnt sem nýr leikmaður bandaríska liðsins New York Cosmos, sem leikur í næstefstu deild.

Ekki hefur verið tilgreint til hve langs tíma samningur Spánverjans sé, aðeins að hann sé til fleiri en eins árs, en Raúl er 37 ára gamall.

Raúl lagði skóna á hilluna í vor eftir að hafa síðast verið á mála hjá Al Sadd í Katar um tveggja ára skeið. Áður var hann leikmaður Schalke í tvö tímabil, eftir sextán ára feril sem ein helsta stjarna Real Madrid.

Raúl varð sex sinnum spænskur meistari með Real og þrívegis Evrópumeistari. Hann hefur skorað flest mörk í sögu félagsins eða 323 mörk í öllum keppnum. Með spænska landsliðinu skoraði hann 44 mörk í 102 landsleikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert