Átta lið komin í sextán liða úrslitin

Chelsea er eitt þeirra liða sem er komið áfram og …
Chelsea er eitt þeirra liða sem er komið áfram og hér er marki frá Didier Drogba fagnað í leiknum við Schalke í kvöld. AFP

Eftir leiki kvöldsins í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu hafa átta lið tryggt sér keppnisrétt í 16-liða úrslitunum og fleiri geta bæst í hópinn annað kvöld. Chelsea og Shakhtar komust áfram í kvöld.

Þessi lið eru komin áfram:

Real Madrid
Borussia Dortmund
Bayern München
París SG
Barcelona
Chelsea
Porto
Shakhtar Donetsk

Annað kvöld geta Atlético Madrid, Olympiacos, Basel, Leverkusen og Arsenal öll tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum.

Önnur lið sem enn eiga möguleika á að komast áfram og gætu náð öðru tveggja efstu sætanna í lokaumferðinni í desember:
Juventus, Malmö, Liverpool, Ludogorets, Mónakó, Zenit Pétursborg, Benfica, Anderlecht, Galatasaray, Roma, Manchester City, CSKA Moskva, Schalke, Sporting Lissabon.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert