Belgíski knattspyrnumaðurinn Thomas Vermaelen hefur ekkert getað spilað með Barcelona á þessu tímabili, eftir að félagið keypti hann af Arsenal í sumar, og nú hefur verið tilkynnt að hann sé úr leik næstu fimm mánuðina.
Vermaelen hefur glímt við meiðsli í læri allan tímann síðan hann kom til Katalóníu. Félagið staðfesti fyrir stundu að hann færi í uppskurð til að fá bót meina sinna.
Vermaelen er 29 ára gamall miðvörður og lék með Arsenal í fimm ár, þar sem hann var fyrirliði um skeið. Þá á hann að baki 47 landsleiki fyrir Belgíu.