Fyrsta mark Alfreðs á Spáni

Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason. Ljósmynd/heimasíða Real Sociedad

Fyrsta mark Alfreðs Finnbogasonar í alvöru leik fyrir Real Socieadad leit dagsins ljós á Spáni í kvöld. Real Sociedad á nú í höggi við Real Oviedo í bikarnum og kom Alfreð liðinu yfir á 27. mínútu. 

Um er að ræða seinni leik liðanna í 32-liða úrslitum spænska bikarkeppninnar. Alfreð var í byrjunarliðinu en fyrri hálfleik er að ljúka og er staðan 1:0. Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert