Þýskalandsmeistarar Bayern München lentu í kröppum dansi gegn Mainz á útivelli í kvöld í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu.
Mainz komst yfir á 21. mínútu en Bastian Schweinsteiger jafnaði metin með glæsimarki beint úr aukaspyrnu skömmu síðar. Það leit út fyrir að ekki yrðu fleiri mörk skoruð en á lokamínútunni kom Arjen Robben gestunum til bjargar og skoraði sigurmark.
Bayern er því komið með 14 stiga forskot á Wolfsburg á toppi deildarinnar en Wolfsburg á reyndar einn leik til góða.
Bayern og Mainz eru nú komin í jólafrí og verður þráðurinn ekki tekinn upp að nýju hjá þeim í þýsku deildinni fyrr en í lok janúar.