Forveri Alfreðs stimplar sig inn hjá Atletico

Antoine Griezmann
Antoine Griezmann AFP

Forveri Alfreðs Finnbogasonar í framlínu Real Sociedad, Antoine Griezmann, stimplaði sig hressilega inn hjá meisturum Atletico Madrid í gærkvöldi og skoraði þá þrennu í 4:1 útisgri á Atletico Bilbao. 

Griezmann skoraði öll mörkin í síðari hálfleik en ekki hafði farið mjög mikið fyrir honum fram að þessu á tímabilinu. 

Griezmann er 23 ára gamall Frakki og var í herbúðum Sociedad frá unglingaldri eða þar til síðasta sumar. Þá var hann keyptur til Atletico en hreyfing komst á leikmannahóp meistaranna þegar Diego Costa var keyptur til Chelsea. 

Hann gerði sex ára samning við Atletico í lok júní og í byrjun júlí keypti Sociedad Alfreð frá Heerenveen. Alfreð kostaði um þriðjung þeirrar upphæðar sem Sociedad fékk fyrir Frakkann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert