Vítaspyrnutækni Paul Pogba (myndskeið)

Paul Pogba.
Paul Pogba. AFP

Sérstakt tilhlaup Paul Pogba þegar hann tekur vítaspyrnur vekur athygli sem fyrr. Pogba tók spyrnu á dögunum þegar Juventus og Napoli lentu í vítaspyrnukeppni í ítölsku Meistarakeppninni. 

Myndskeið af vítaspyrnu Pogba er að finna á netinu. Hann tiplar löturhægt á tánum í áttina að knettinum áður en hann lætur vaða, að nokkru öryggi vel að merkja. 

Áður hefur Pogba notað þessa sömu aðferð þegar honum hefur verið falið að taka vítaspyrnur og ávallt virðist aðferð hans vekja mikla athygli knattspyrnuáhugamanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert