Í fjögurra leikja bann fyrir hálstakið

Philippe Mexes tekur hér mótherja sinn hálstaki. Fyrir það fékk …
Philippe Mexes tekur hér mótherja sinn hálstaki. Fyrir það fékk hann reisupassann. AFP

Franski varnarmaðurinn Philippe Mexes sem leikur með AC Milan var í dag úrskurðaður í fjögurra leikja bann.

Mexes var rekinn af velli í leik sinna manna gegn Lazio um síðustu helgi fyrir að taka Stefano Mauri varnarmann Lazio hálstaki. Þetta var 16 rauða spjaldið sem Mexes fær að líta á ferli sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert