Leikvangur Real Madrid fær nýtt nafn

Santiago Bernabeu.
Santiago Bernabeu. AFP

Santiago Bernabéu heimavöllur Evrópumeistara Real Madrid mun fá nýtt nafn að því er fram kemur í spænska blaðinu AS í dag.

Forráðamenn Real Madrid hafa ákveðið að selja nafnið á leikvanginum og næstu 20 árin mun þessi frægi völlur heita Abu Dhabi Bernabéu.

Nafnið er dýru verði keypt en Real Madrid mun fá 20 milljónir evra árlega en sú upphæð nemur rúmum 3 milljörðum íslenska króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert