Hólmbert skoraði í Íslendingaslag

Hólmbert Aron Friðjónsson.
Hólmbert Aron Friðjónsson. mbl.is/Ómar

Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði mark danska liðsins Bröndby þegar liðið tapaði fyrir sænska liðinu Örebro á æfingamóti í Portúgal í dag.

Hólmbert jafnaði metin fyrir sína menn á 19. mínútu leiksins en Örebro tryggði sér sigurinn í seinni hálfleik. Eiður Aron Sigurbjörnsson lék allan tímann fyrir Örebro og nýjasti liðsmaður þess, Hjörtur Logi Valgarðsson, lék síðasta stundarfjórðunginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert