Glódís með tvö mörk

Glódís Perla Viggósdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir mbl.is/Ómar

Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, skoraði tvö mörk í kvöld þegar lið hennar, Eskilstuna United, burstaði Västerås, 9:0, í æfingaleik.

Glódís gekk til liðs við Eskilstuna frá Stjörnunni í vetur en liðið var nýliði í sænsku úrvalsdeildinni í fyrra og stóð sig vel, endaði í sjöunda sætinu. Lið Västerås spilar í B-deildinni.

Keppni í sænsku úrvalsdeildinni hefst 11. apríl en Eskilstuna á heimaleik gegn Linköping í fyrstu umferðinni. Glódís er annars á förum til Portúgals með íslenska landsliðinu sem spilar fyrsta leik gegn Sviss í Algarve-bikarnum á miðvikudaginn kemur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert