Arnór lánaður til Moskvu

Arnór Smárason
Arnór Smárason mbl.is/Eggert

Sænska knattspyrnufélagið Helsingborg hefur lánað miðjumanninn Arnór Smárason til rússneska félagsins Torpedo Moskva fram á mitt sumar, eða til 30. júní.

Þetta var tilkynnt á vef Helsingborg fyrir stundu. „Þetta verður skemmtilegt ævintýri, deildin er ein af þeim stærstu í Evrópu og ég fæ gott  tækifæri til að sýna mig og sanna," segir Arnór við vef sænska félagsins.

Torpedo er í tólfta sæti af sextán liðum í rússnesku úrvalsdeildinni, einu stigi ofar en Ural, sem Sölvi Geir Ottesen lék með til skamms tíma, en 17 umferðir af 30 voru leiknar fyrir áramót.

Fyrsti leikur liðsins eftir vetrarfríið er útileikur gegn Amkar Perm annan mánudag, 9. mars.

Arnór er 26 ára gamall og kom til Helsingborg frá Esbjerg í Danmörku sumarið 2013. Hann lék 26 af 30 leikjum liðsins í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta ári og skoraði 4 mörk. Arnór hefur leikið 17 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað tvö mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert