Dortmund hefur heldur rétt úr kútnum í þýsku Bundesligunni í fótbolta á undanförnum vikum. Liðið vann í dag Schalke, 3:0, og var þetta fjórði sigur liðsins í röð.
Það eru ekki margar vikur síðan Dortmund sat á botni deildarinnar og sæti Jurgens Klopp þjálfara liðsins sjóðandi heitt. En Klopp hefur heldur betur náð að stappa stálinu í sína menn og eftir sigurinn í dag er liðið komið upp í 9. sæti deildarinnar.
Pierre-Emerick Aubameyan, Henrik Mkhitaryan og Marco Reus skoruðu mörk Dortmund í dag sem kom öll á síðustu 12 mínútum leiksins.