Alfreð enn á bekknum

Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason. EPA

Alfreð Finnbogason verður enn að sætta sig við að verma varamannabekkinn í liði Real Sociedad en liðið mætir Valencia á Estadio de Mestalla leikvanginum í Valencia klukkan 11.

Alfreð er á meðal varamanna hjá Sociedad en í 24 leikjum liðsins í deildinni hefur hann aðeins byrjað inná í fjórum leikjum. Alfreð hefur komið við sögu í 17 af þessum 24 en hann á enn eftir að skora í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert