Hörður Björgvin með í sigri Cesena

Hörður Björgvin Magnússon
Hörður Björgvin Magnússon ljósmynd/twitter

Hörður Björgvin Magnússon lék allan tímann fyrir Cesena þegar liðið hrósaði 1:0 sigri gegn Udinese í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag.

Þrátt fyrir sigurinn er Cesena áfram í fallsæti en liðið er með 19 stig í næst neðsta sætinu. Cagliari er með 20 stig og er einnig í fallsæti en Atalanta kemur þar fyrir ofan með 23 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert