Kínverska knattspyrnuliðið Jiangsu Sainty frumsýndi nýja búninga sína fyrir komandi keppnistímabil í morgun og að sjálfsögðu voru Íslendingarnir í liðinu, Viðar Örn Kjartansson og Sölvi Geir Ottesen, notaðir sem fyrirsætur ásamt þremur öðrum nýjum leikmönnum.
Þeir félagar eru í gulu varabúningum liðsins á meðfylgjandi mynd sem birt var á Twitter fyrir stundu en aðalbúningur liðsins er sá blái. Viðar verður í treyju númer 10 og Sölvi númer 6.
Keppni í kínversku úrvalsdeildinni hefst um næstu helgi en Jiangsu Sainty leikur við Shanghai SIPG á útivelli á laugardaginn.
Our new players are displaying new kit (blue/home, yellow/away) and new ads from Suning. pic.twitter.com/OqxZfFpjzV
— Jiangsu Sainty News (@saintyfc) March 3, 2015