Zlatan alveg ískaldur (myndskeið)

Zlatan Ibrahimovic var með hlutina á hreinu í kvöld.
Zlatan Ibrahimovic var með hlutina á hreinu í kvöld. AFP

Zlatan Ibrahimovic, skærasta stjarna Svía í knattspyrnu, skoraði ansi skondið mark í sigri þeirra á Moldóvu í undankeppni Evrópumótsins í kvöld.

Lokatölur urðu 2:0 fyrir Svía og skoraði Zlatan bæði mörkin, það fyrra í upphafi síðari hálfleiks og verður það að teljast ansi skondið. Ilie Cebanu, markvörður heimamanna, ætlaði þá að spyrna frá marki sínu en Zlatan var á öðru máli eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

Svíar eru í öðru sæti G-riðils eftir sigurinn með níu stig eftir fimm leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert