Birkir missti af sigurleik

Birkir Bjarnason
Birkir Bjarnason mbl.is/Víðir Sigurðsson

Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, gat ekki leikið með Pescara í dag þegar lið hans vann mikilvægan sigur á Modena, 1:0, í ítölsku B-deildinni.

Birkir fékk högg á læri í vikunni og í ómskoðun kom í ljós lítil rifa á vöðvanum. Læknalið Pescara ákvað því að hann yrði hvíldur næstu fimm dagana eða svo þannig að góðar líkur eru á að hann nái næsta leik.

Pescara lyfti sér upp í 7. sæti deildarinnar með sigrinum í dag en liðð er átta stigum frá öðru sæti. Tvö efstu liðin fara beint upp en liðin í sætum þrjú til átta fara í umspil um eitt sæti í A-deildinni. Sex mferðum er ólokið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert