Það verður Juventus!

Karim Benzema var með puttann á púlsinum í dag.
Karim Benzema var með puttann á púlsinum í dag. AFP

Viðbrögð leikmanna við Meistaradeildardrættinum eru smátt og smátt að týnast inn. Franski sóknarmaðurinn Karim Benzema fylgdist vel með eins og tístið hér að neðan sýnir.

Pavel Nedved, fulltrúi Juventus í Sviss þar sem dregið var í undanúrslitin segir það frábært fyrir Juventus að vera komið aftur í undanúrslitin.

Við erum mjög ánægir að vera komnir aftur í undanúrslitin eftir 12 ár. Ég spilaði gegn Madrid síðast [þegar Juventus vann samanlagt 4:3 árið 2002-2003. Þetta verða mjög skemmtileg undanúrslit.

Mario Götze, leikmaður Bayern München er einnig spenntur að mæta Barcelona.

 „Það verður Juventus!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert