Alfreð aftur í hópinn

Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason. AFP

Landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason hefur náð að hrista af sér meiðslin í nára sem hafa verið að angra hann og framherjinn er  í leikmannahópi Real Sociedad sem tekur á móti Villareal í spænsku 1. deildinni í kvöld.

Alfreð hefur ekki verið með í síðustu leikjum Sociedad vegna meiðslanna en kominn í hópinn og byrjar á bekknum í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert