Magnaðir taktar hjá Suárez (myndskeið)

Luis Suárez fagnar innilega með Lionel Messi.
Luis Suárez fagnar innilega með Lionel Messi. AFP

Luis Suárez framherji Barcelona er engum líkur. Barcelona er 2:0 yfir gegn erkifjendum sínum í Espanyol í hálfleik en fyrra markið sem Neymar skoraði var hreint út sagt magnað.

Suárez fékk sendingu frá Jordi Alba en lét hana fara í gegnum klof sitt þrátt fyrir að vera í algjöru dauðafæri. Hann vissi hins vegar af Brasilíumanninum Neymar á bak við sig sem endaði á því að skora fyrsta mark leiksins.

Það hefði ekki hver sem er látið þennan fara framhjá sér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert