Stelpurnar hans Jóns Páls á toppnum

Jón Páll Pálmaso þjálfari Klepp.
Jón Páll Pálmaso þjálfari Klepp. Ljósmynd/kleppil.no

Stelpurnar hans Jóns Páls Pálmasonar í norska úrvalsdeildarliðinu Klepp náðu í dag eins stigs forskoti á toppi deildarinnar þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Kolbotn á útivelli.

María Þórisdóttir skoraði mark Klepp en hún er dóttir Þóris Hergeirssonar þjálfara norska kvennalandsliðsins í knattspyrnu. Hún lék á dögunum sinn fyrsta leik með norska A-landsliðinu. Landsliðskonan Katrín Ásbjörnsdóttir leikur með Klepp og hún spilaði allan tímann í dag.

Eftir fjórar umferðir er Klepp með 10 stig í efsta sætinu en Lilleström kemur næst með 9 stig en á leik til góða síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert