Chicharito með tvö fyrir Real Madrid

Javier Hernandez er hér að skora fyrir Real Madrid í …
Javier Hernandez er hér að skora fyrir Real Madrid í kvöld. AFP

Real Madrid minnkaði forskot Barcelona niður í tvö stig þegar liðið lagði Celta Vigo á útivelli, 4:2, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.

Aldrei þessu vant var Cristiano Ronaldo ekki á meðal markaskorar Real Madrid en Javier Hernandez skoraði tvö marka Evrópumeistaranna og þeir Toni Kroos og James Rodriguez skoruðu sitt markið hvor.

Barcelona er með 81 stig í efsta sæti, Real Madrid er með 79 stig í öðru sæti og Spánarmeistararnir í Atlético Madrid eru með 72 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert