Robben snýr aftur

Arjen Robben gæti spilað annað kvöld.
Arjen Robben gæti spilað annað kvöld. AFP

Hollenski knattspyrnumaðurinn Arjen Robben mun væntanlega snúa aftur í lið Bayern München sem mætir Borussia Dortmund í undanúrslitum þýska bikarsins annað kvöld en Robben hefur verið frá vegna meiðsla síðan í lok mars.

„Hann er einmitt það sem við þurftum. Hann hefur æft og allir hafa séð í hversu góðu formi hann er. Ef hann er klár, þá mun hann spila. Hann þarf ekki mikinn tíma til þess að komast í form, ástand hans er um margt sérstakt,“ sagði Pepe Guardiola þjálfari Bayern München.

Fráfarandi stjóri Dortmund, Jürgen Klopp er ákveðinn í að enda dvöl sína hjá liðinu með titli.

„Ef þú vilt vinna bikarinn, þá þarftu að vinna Bayern, hvort sem það er í undanúrslitum eða í úrslitum. Þeir gefa ekkert eftir, sem er ástæðan fyrir því að við þurfum að vera vel á verði,“ sagði Klopp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert