Arnór skoraði í sigri Norrköping

Arnór Yngvi Traustason
Arnór Yngvi Traustason Kristinn Ingvarsson

Arnór Ingvi Traustason skoraði fyrsta markið í 2:1 sigri Norrköping gegn Åtvitaberg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Arnór kom Norrköping í forystu á 55. mínútu með marki sínu, en liðsfélagi hans, Emir Kujovic, hafði brennt af víti í fyrri hálfleik. Það tók Aatvitaberg ekki nema 6 mínútur að jafna metin með marki Victors Skoeld en Arnór og félagar báru sigur úr býtum eftir að Christoffer Nyman, sem lagði mark Arnórs upp, skoraði á 74. mínútu. Arnór spilaði allan leikinn.

Norrköping komst í 5. sæti deildarinnar með 13 stig að sjö leikjum loknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert