Ráðist á leikmann í miðju viðtali (myndband)

Ocanto í viðtalinu.
Ocanto í viðtalinu. Ljósmynd/youtube

Knattspyrnumaðurinn Aquiles Ocanto leikmaður fékk heldur betur að finna fyrir því eftir leik Carabobo og Aragua sem gerðu markalaust jafntefli í úrvalsdeildinni í Venesúela.

Ocanto var í viðtali við huggulega sjónvarpskonu eftir leikinn þegar stuðningsmaður Aragua réðst aftan að honum og veitti honum þungt högg í bakið eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert