El Shaarawy setti tvö fyrir AC Milan

Stephan El Shaarawy fagnar marki í kvöld.
Stephan El Shaarawy fagnar marki í kvöld. AFP

AC Milan átti ekki í vandræðum með að leggja Torinó að velli þegar liðin áttust við í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

AC Milan fagnaði 3:0 sigri þar sem Stephan El Shaarawy skoraði tvö mörk og Giampaolo Pazzini skoraði úr vítaspyrnu. Cristian Zaccardo leikmanni AC Milan var vikið útaf á 43. mínútu og Cristian Molinaro leikmaður Torinó fór sömu leið á 57. mínútu.

AC Milan er áfram í 10. sæti deildarinnar en liðið hefur 49 stig en Torinó er sætinu fyrir ofan með 51 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert