Birkir skaut Pescara áfram í umspilinu

Birkir Bjarnason var hetjan.
Birkir Bjarnason var hetjan. Ljósmynd/pescaracalcio.com

Birkir Bjarnason var heldur betur hetja Pescara í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum í umspili um laust sæti í ítölsku A-deildinni.

Pescara mætti þá Perugia á útivelli í leik um sæti í undanúrslitunum. Eftir markalausan fyrri hálfleik komust heimamenn yfir, en eftir rúmlega klukkutíma leik kom jöfnunarmark Pescara.

Birkir tryggði Pescara svo sigurinn þegar hann skoraði úr vítaspyrnu á 74. mínútu, og tryggði liðinu sæti í umspili. Liðið endaði í sjöunda sæti deildarinnar, einu á eftir Perugia, en mætir Vicenza heima og heiman í undanúrslitum umspilsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert