Get haldið De Gea út úr liðinu

Iker Casillas.
Iker Casillas. AFP

Iker Casillas, landsliðsmarkvörður Spánar og leikmaður Evrópumeistara Real Madrid, segir að hann geti haldið landa sínum David de Gea úr liðinu ef svo fer að hann komi til félagsins í sumar frá Manchester United.

„Ég verð í markinu á næsta tímabili og hef engan áhuga á að fara frá Real Madrid. Ég mundi halda öðrum úr liðinu því ég er það kappsamur,“ sagði Casillas, en hann hefur þó verið nokkuð gagnrýndur á tímabilinu.

„Það er engin klásúla í mínum samningi sem segir að ég verði að byrja alla leiki, ég verð að berjast. De Gea er mjög indæll náungi og við náum vel saman,“ sagði Casillas en þeir þekkjast úr landsliðinu.

„Við erum ekki nánir en höfum alltaf náð vel saman. Það er ljóst að hann á framtíðina fyrir sér. Ef hann verður samherji minn á næsta tímabili held ég að við munum vinna vel saman, það verður ekkert vandamál okkar á milli,“ sagði Casillas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert