Kjartan Henry kom Horsens á bragðið

Kjartan Henry Finnbogason var á skotskónum í dag.
Kjartan Henry Finnbogason var á skotskónum í dag. Ljósmynd/achorsens.dk

Kjartan Henry Finnbogason var á skotskónum fyrir Horsens þegar liðið gerði2:2-jafntefli við Vejle á heimavelli í dönsku B-deildinni í knattspyrnu í dag.

Vejle komst yfir í fyrri hálfleik og hafði forystu að honum loknum, en Kjartan Henry jafnaði metin á 57. mínútu. Horsens komst svo yfir stundarfjórðungi fyrir leikslok áður en gestirnir jöfnuðu, lokatölur 2:2.

Þetta er tólfta mark Kjartans fyrir Horsens, sem komst upp í sjötta sætið og hefur þar 38 stig eftir 32 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert