Ronaldo handtekinn fyrir þvaglát á almannafæri

Cristiano Ronaldo fyrir utan næturklúbbinn í nótt.
Cristiano Ronaldo fyrir utan næturklúbbinn í nótt.

Cristiano Ronaldo, stjarna Real Madrid og portúgalska landsliðsins í knattspyrnu, var handtekinn í nótt í franska bænum Saint Tropez fyrir að kasta af sér þvagi á almannafæri.

Mynd sem tekin var af Ronaldo við þetta tækifæri, fyrir utan næturklúbb í bænum, hefur gengið eins og eldur í sinu um netheima í morgun.

Daily Mail skýrir frá því að lögreglan á staðnum hafi staðið Ronaldo að verki. Tvennum sögum fer hinsvegar af framhaldinu. Enska blaðið segir að hann hafi verið fluttur á brott til yfirheyrslu en aðrir að lögreglan hafi látið strangt tiltal duga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert