Arnar Þór til Lokeren

Arnar Þór Viðarsson.
Arnar Þór Viðarsson. Ljósmynd/Kristján Bernburg

Arnar Þór Viðarsson hefur verið ráðinn þjálfari varaliðs belgíska knattspyrnuliðsins Lokeren. Þar með er Arnar kominn aftur á heimaslóðir en hann lék í mörg ár með félaginu, alls 235 leiki.

Arnar mun einnig vinna náið með þjálfara aðalliðs Lokeren. Arnari Þór var sagt upp störfum sem þjálfara aðalliðs Cercle Brugge í mars eftir að hafa stýrt liðinu í nokkra mánuði en hann var áður aðstoðarþjálfari liðsins og leikmaður þar á undan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert