Auðveldur sigur West Ham í forkeppninni

Slaven Billic er nýr knattspyrnustjóri West Ham.
Slaven Billic er nýr knattspyrnustjóri West Ham. AFP

West Ham United vann auðveldan 3:0 sigur á FC Lusitans frá Andorra í fyrri leik 1. umferðar forkeppni Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu.

Slaven Billic, nýráðinn þjálfari West Ham, var kynntur í byrjun leiks við mikið lófatak aðdáenda liðsins sem fylltu stúkurnar en það var unglingaliðsþjálfarinn, Terry Westley, sem stýrði liðinu í dag.

West Ham tefldi fram ungu liði og átti í litlum vandræðum með Lusitans. Diafra Sakho skoraði tvö fyrstu mörk leiksins og James Tomkins skoraði lokamarkið á 59. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert