Forsetinn óskar Bandaríkjum góðs gengis

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. AFP

Það er alltaf hægt að reikna með því að Bandaríkjamenn standi fastast við bak sinnar þjóðar, hvort sem það er í íþróttum eða öðru. Því ætti það ekki að koma neinum á óvart þegar samskiptasíðan Twitter er full af hvatningartístum til bandarísku landsliðskvennanna sem leika til úrslita gegn Japan á heimsmeistaramóti kvenna í kvöld.

Hér fylgja tíst m.a. frá Barack Obama, Bandaríkjaforseta, og öðrum frægum Bandaríkjamönnum og rúsínan í pylsuendanum er hvatningarræða frá Dwayne „The Rock“ Johnson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert