Elías Már Ómarsson skoraði tvennu í 2:1 útisigri Vålerenga á Odd Ballklubb í dag. Þetta voru fyrstu mörk hans fyrir liðið en hann gekk til liðs við Vålerenga frá Keflavík í vetur.
Þetta var aðeins þriðji leikur Elíasar í byrjunarliðinu en hann var fenginn fyrst og fremst fyrir framtíðina. Seinna mark Elíasar kom á 85. mínútu og var af dýrari gerðinni, hann plataði varnarmann Odd gjörsamlega úr skónum og þrumaði boltanum síðan á nærstöng eins og sést á meðfylgjandi vine-myndskeiði.