Roberto Carlos færir sig um set

Roberto Carlos nýráðinn þjálfari Delhi Dynamos.
Roberto Carlos nýráðinn þjálfari Delhi Dynamos. mbl.is / http://www.superleaguecentral.com/

Brasilíumaðurinn Roberto Carlos hefur verið ráðinn þjálfari indverska liðsins Delhi Dynamos. Roberto Carlos hóf þjálfaraferil sinn fljótlega eftir að leikmannaferli hans laus og hefur hann þjálfað tyrknesku liðin Sivasspor og Akhisar Belediyespor. 

Delhi Dynamos spilar í indversku ofurdeildinni sem sett var á laggirnar haustið 2013 og liðið var stofnað haustið 2014. Delhi Dynamos er í samstarfi við hollenska liðið Feyenoord og er þessa dagana að safna saman leikmannahópi fyrir næstkomandi tímabil. Delhi Dynamos lenti í 5. sæti í indversku ofurdeildinni á síðastliðnu tímabili.

Roberto Carlos tjáði sig um nýja starfið á instagram síðu sinni þar sem hann segir: 

„Góðan daginn allir saman. Mig langar til þess að láta ykkur vita að ég er nýráðinn þjálfari Delhi Dynamos í Indlandi. Þetta er áhugavert verkefni hjá ört vaxandi félagi. Ég er hæstánægður með að vera orðinn hluti af þessu félagi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert