Heppinn að vera liðsfélagi Pirlo

Lampard fer af velli í ensku úrvalsdeildinni í síðasta sinn.
Lampard fer af velli í ensku úrvalsdeildinni í síðasta sinn. AFP

Frank Lampard, fyrrum leikmaður Chelsea og enska landsliðsins, segist vera heppinn að fá að spila með Ítalanum Andrea Pirlo í New York City FC.

Lampard gekk til liðs við New York City FC fyrir ári síðan en fór beint á lán til Manchester City út tímabilið. Hann var formlega kynntur sem leikmaður New York nýlega og mun leika sinn fyrsta leik fyrir liðið þann 12. júlí þegar New York mætir Toronto FC í MLS-deildinni í knattspyrnu. 

„David og Andrea eru efstir á listanum mínum. Ég er heppinn að fá að vera í sama liði og þeir,“ sagði Lampard um Andrea Pirlo og David Villa, nýju liðsfélaga sína. Villa gekk til liðs við New York í fyrrasumar og hefur skorað átta mörk í MLS-deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert