Sanchéz fer hamförum á Instagram (myndskeið)

Alexis Sánchez.
Alexis Sánchez. AFP

Alexis Sanchéz sóknarmaður Arsenal er með afar fróðlega Instagram-síðu og fer ósjaldan ótroðnar slóðir í vægast sagt athyglisverðum innslögum sínum.

Síðustu innslag kappans er í anda Rocky Balboa þar sem kappinn meðal annars tekur spretti ber að ofan í „slow motion“ í nokkuð „íslensku“ umhverfi í svörtum sandi en nokkuð ljóst er að kappinn er ekkert ósáttur við líkamsform sitt þrátt fyrir að  hann verði ekki með Arsenal í fyrstu leikjum ensku úrvalsdeildarinnar.

Hann snýr síðar til æfinga en aðrir þar sem hann var allt í öllu með Sílu í Suður-Ameríkubikarnum og tryggði liðinu meðal annars sigurinn með vítaspyrnu sinni gegn Argentínu en leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni.

Fyrsti leikur Arsenal á tímabilinu er gegn Chelsea í leiknum um Góðgerðarskjöldinn næstkomandi sunnudag en fysti leikur liðsins í deildinni fer fram þann 9. ágúst gegn West Ham.

Entrenando ⚽️ training ...

A video posted by Alexis Sanchez (@alexis_officia1) on Jul 26, 2015 at 3:30pm PDT

Entrenamiento ⚽️ training ⚽️😴

A video posted by Alexis Sanchez (@alexis_officia1) on Jul 26, 2015 at 3:17pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert