Zlatan fékk hræðilega martröð

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. AFP

Framherjinn Adrian Mutu sagði afar fyndna sögu af fyrrum liðsfélaga sínum hjá Juventus, Svíanum Zlatan Ibrahimovic, sem nú er á mála hjá Paris Saint Germain.

Þeir félagar léku saman með Juventus á árunum 2004 til 2006 og eitt sinn á ferðalagi með liðinu þar sem þeir deildu herbergi vaknaði Zlatan upp við vonda martröð.

„Adi vaknaðu! Ég fékk martröð. Mig dreymdi að Ronaldo væri betri en ég!“ sagði Mutu um fyrstu viðbrögð Zlatans eftir að karlanginn vaknaði.

„Hann sofnaði bara eftir að ég sagði við hann: „Nei, Zlatan, nei! Þú ert bestur í heiminum, róaðu þig niður!““

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert