Mögnuð móttaka Ronaldo (myndskeið)

Cristiano Ronaldo gat skemmt sér á æfingu.
Cristiano Ronaldo gat skemmt sér á æfingu. AFP

Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid á Spáni, sýndi skemmtilega takta á æfingu liðsins í dag, en Madrídingar eru í æfingaferð um Suður-Ameríku og Asíu þessa stundina.

Nokkrir leikmenn Real Madrid léku sér að halda á lofti og ákvað Keylor Navas, markvörður liðsins, að skjóta boltanum hátt upp í loft.

Ronaldo gaf sér tíma að veifa stuðningsmönnum í stúkunni og tók við boltanum í leiðinni, en hægt er að sjá þessa skemmtilegu takta hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert