AS Roma á Ítalíu staðfesti í dag komu pólska markvarðarins, Wojciech Szczesny, en hann kemur frá Arsenal á eins árs lánssamning.
Szczesny, sem er 25 ára gamall, hefur átt fast sæti í byrjunarliði Arsenal undanfarin ár, en á síðustu leiktíð tókst David Ospina að hirða stöðuna af honum.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, ákvað því í sumar að lána hann frá félaginu, en ítalska stórliðið, AS Roma, staðfesti komu hans í dag.
Fleiri fréttir komu þá frá Ítalíu í kvöld, en Mohamed Salah, vængmaður Chelsea á Englandi, er á leið til Roma á lánssamning sem gildir út tímabilið.