Elías Már tekinn út af í tapi

Elías Már Ómarsson í leik með Vålerenga fyrr á tímabilinu.
Elías Már Ómarsson í leik með Vålerenga fyrr á tímabilinu. Ljósmynd / vif-fotball.no

Elías Már Ómarsson var tekinn af velli eftir klukkutíma leik þegar lið hans Vålerenga tapaði fyrir Stabæk með tveimur mörkum gegn engu í norsku úrvalsdeildinni í dag. Ernest Asante skoraði fyrra markið á 11. mínútu leiksins og Luc Kassi það seinna þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir af leiknum. 

Vålerenga og Stabæk voru í öðru og þriðja sæti deildarinnar fyrir leik liðanna í dag. Stabæk er eftir þennan sigur með 35 stig í öðru sæti deildarinnar fjórum stigum frá Rosenborg sem trónir á toppnum. 

Vålerenga er með 33 stig í þriðja sæti deildarinnar, en þriðja sæti deildarinnar veitir rétt til þátttöku í Evrópudeildinni á næsta tímabili. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert