Sonur Beckenbauers látinn

Franz Beckenbauer.
Franz Beckenbauer. AFP

Stephan Beckenbauer, sonur goðsagnarinnar Franz Beckenbauer, er látinn eftir langvarandi veikindi. Bayern Münhen tilkynnti um andlátið í dag.

Stephan Beckenbauer var 46 ára gamall. Hann lék með áhugamannaliði Bayern München og þá lék hann einnig með þýsku liðunum FC Saarbrücken og 1860 München.

Eftir að fótboltaferlinum lauk þjálfaði hann yngri lið Bayern München og meðal þeirra leikmanna sem hann kom að voru þýsku landsliðsmennirnir Bastian Schweinsteiger, Mats Hummels og Thomas Müller.

„Það er með mikilli sorg sem fjölskylda Beckenbauers og Bayern München tilkynna að Stephan Beckenbauer lést í nótt,“ segir á vef Bayern München.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert