Wolfsburg hafði betur gegn Bayern München í árlegum meistaraleik í þýska fótboltanum í kvöld.
Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var jöfn, 1:1, en Wolfsburg hafði betur í vítaspyrnukeppni, 5:4.
Arjen Robben kom Bayern yfir á 49. mínútu og allt stefni í sigur Bæjara en á 89. mínútu jafnaði Daninn Nicklas Bendtner metin fyrir Wolfsburg.
Wolfburg skoraði úr öllum fimm vítaspyrnum sínum en Bayern skoraði úr fjórum þar sem Xabi Alonso brást bogalistin.