Fyrsti útisigur LA Galaxy í tæpt ár

Steven Gerrard lék með LA Galaxy í sigri liðsins gegn …
Steven Gerrard lék með LA Galaxy í sigri liðsins gegn Colorado Rapids í nótt. Ljósmynd / Twitter/LAGalaxy

Robbie Keane og Steven Gerrard voru báðir í liði LA Galaxy sem vann 3:1 sigur á Colorado Rapids í nótt. Þetta var fyrsti sigur LA Galaxy í tæpt ár. Keane og Gerrard voru báðir tæpir fyrir leikinn vegna meiðsla, en þeir hafa náð að hrista þau af sér.

Gerrard átti þátt í öðru marki LA Galaxy í leiknum, en Alan Gordon fylgdi eftir skoti hans sem var varið. Keane skoraði svo þriðja mark LA Galaxy í uppbótartíma leiksins. 

LA Galaxy er í þriðja sæti í vesturdeild MLS deildarinnar með 37 eftir 24 leiki. Sex efstu liðin í hvorri deild fara í úrslitakeppni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert