PSV Eindhoven meistari meistaranna

Luuk de Jong var sjóðheitur fyrir PSV Einhoven í dag.
Luuk de Jong var sjóðheitur fyrir PSV Einhoven í dag. Ljosmynd. / VI Images

Hollandsmeistararnir PSV Eindhoven sem Hjörtur Hermannsson eru mála hjá, varð í dag meistari meistaranna eftir 3:0 sigur á Groningen. Luuk de Jong sem var á láni hjá Newcastle United á síðasta keppnitímabili skoraði tvö mörk í leiknum og Adam Maher skoraði þriðja mark PSV Einhoven. 

Hvorki Hjörtur Hermannsson né Albert Guðmundsson voru í leikmannahópi PSV Eindhoven í dag. 

PSV Eindhoven hefur titilvörn sína með því að mæta ADO Den Haag þegar hollenska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert