Ronaldo gaf umboðsmanninum eyju

Félagarnir flottir áður en athöfnin hófst.
Félagarnir flottir áður en athöfnin hófst. Skjáskot/Instagram

Umboðsmaður Cristiano Ronaldo, Jor­ge Mendes, gengur í það heilaga í dag og portúgalski snillingurinn er svaramaður í brúðkaupinu. 

Samkvæmt erlendum fjölmiðlum gaf Ronaldo Mendes og frú gríska eyju í brúðkaupsgjöf!

Mendes hefur verið umboðsmaður Ronaldo í gegnum árin og saman hafa þeir grætt háar fjarhæðir. Ronaldo virðist vera ánægður með umbann sinn, allavega ef marka má brúðkaupsgjöfina.

Vegna efnahagsvandans sem Grikkir eru í getur fólk nú keypt nokkrar grískar eyjar. Kosta þær frá 3 milljónum evra (443 milljónum íslenskra króna) til 50 milljóna evra ( 7,3 milljarðar íslenskra króna).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert