Markið hjá Rúnari Má (myndskeið)

Rúnar Már Sigurjónsson skoraði í kvöld.
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði í kvöld. Ómar Óskarsson

Eins og kom fram á mbl.is fyrr í kvöld skoraði Rúnar Már Sigurjónsson fyrsta mark Sundsvall í 3:0 sigri á Hammarby í kvöld.

Rúnar Már rak þá endahnútinn á snarpa sókn Sundsvall og skoraði framhjá Ögmundi Kristinssyni í marki Hammarby, en markið var hans þriðja á tímabilinu.

Markið og svipmyndir úr leiknum má sjá í meðfylgjandi myndskeiði, en markið hans Rúnars kemur eftir um það bil mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert