Vildi ekki gefa Ronaldo númerið sitt (myndskeið)

Ronaldo í æfingaleik gegn Inter Milan í lok júlí.
Ronaldo í æfingaleik gegn Inter Milan í lok júlí. AFP

Cristiano Ronaldo, stórstjarna Real Madrid, birti stórskemmtilegt myndband á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Þar leikur hann ýmsar kúnstir með bolta á götum Madrídar í dulargervi og keppist við að fá athygli frá fólki sem á þar leið um. Ein kona neitaði að gefa upp símanúmer sitt þegar Ronaldo spurði hana og hraðaði sér í burtu frá honum.

Ungur drengur var þó til í að leika sér með Ronaldo. Þá greip Portúgalinn tækifærið og tók af sér dulargervið við mikla lukku nærstaddra. Ronaldo áritaði boltann og gaf unga drengnum áður en hann flúði gesti miðborgarinnar sem tóku að streyma að honum.

People are going to think that I’m crazy!#LIVELIFELOUDClick here to check out my new brand at ebay.com/roc

Posted by Cristiano Ronaldo on Monday, 3 August 2015
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert