Morata gæti misst af byrjun tímabils

Alvaro Morata.
Alvaro Morata. AFP

Spænski framherjinn Alvaro Morata meiddist á kálfa á æfingu í gær og verður fjarri góðu gamni í um 30 daga. Þetta kemur fram á heimasíðu Juventus. Hann mun því að öllum líkindum missa af leik Juventus gegn Lazio í ítalska Ofurbikarnum.

Morata gekk til liðs við Juventus frá Real Madrid á 20 milljónir evra fyrir rúmlega ári síðan. Hann skoraði 15 mörk í 45 leikjum fyrir Juventus á sínu fyrsta tímabili og þar af 5 mörk í 11 leikjum í Meistaradeild Evrópu, þar á meðal eina mark Juventus í úrslitaleiknum en liðið tapaði fyrir Barcelona, 3:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert